Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 19. júní 2013 22:24
Fótbolti.net
Ási Arnars: Spilaðist eins og við áttum von á
Gunnar Stígur Reynisson skrifar frá Höfn í Hornafirði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Leikurinn spilaðist eins og við áttum von á. Þeir lágu niðri, voru skipulagðir og agaðir. Þetta er flott lið hjá Óla Stefáni hérna. Duglegir strákar og grimmir," sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis eftir 0-3 sigur á Sindra á Hornafirði í Borgunarbikarnum í kvöld.

,,Við fengum 2-3 færi í fyrri hálfleik en náðum ekki að nýta þau. Þá snýst þetta um þolinmæði að bíða eftir réttu opnuninni. Sindri fékk alveg möguleika á að setja á okkur, áttu tvö til þrjú upphlaup. Það gat allt gerst í því en þegar við náðum að setja fyrsta markið fannst mér þetta engin spurning."

Fylkir kom sterkara til leiks í síðari hálfleikinn. Sagði Ásmundur eitthvað við strákana í hálfleiknum?

,,Við þurftum að setja meira flæði á boltann og meiri yfirvegun í okkar aðgerðir," sagði Ásmundur. ,,Færa boltann rétt til. Við fórum betur yfir það og það gekk betur í seinni hálfleiknum."
Slapp
banner
banner