Atli Már Rúnarsson, þjálfari Magna á Grenivík, var eðlilega svekktur eftir að lið hans datt út úr 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld fyrir Gróttu, 3-2.
Grótta náði tveggja marka forystu áður en Magnamenn mættu af krafti og jöfnuðu í 2-2 á síðasta korterinu. Grótta náði hinsvegar að lauma inn marki og tryggja sér í 8-liða úrslit bikarsins.
,,Miðað við hvernig þetta þróaðist þá var þetta ekki bjart í stöðunni 2-0 og manni færri, en svo fórum við í gang og komumst í þann gír eins og við höfum verið að gera á æfingu og ef við hefðum haldið stöðunni 2-2 lengur þá er ég viss um að við hefðum laumað inn marki undir lokin," sagði Atli.
Valgeir Valgeirsson, dómari leiksins, rak Agnar Darra Sverrisson útaf um miðjan síðari hálfleik er hann fékk sitt annað gula spjald.
,,Fyrra gula spjaldið var hárréttur dómur, en ég er ekki frá því að Valgeir kannist eitthvað við hann því að það sem skeður er að Agnar Darri er að hlaupa í boltann og hleypur fyrir hann og fær gult spjald, mér fannst þetta strangur dómur. Þeir segja að þetta sé þriðja skiptið sem hann er að fara í menn en þetta er dýrt og hann dæmdi þetta samt ágætlega og ekkert yfir því að kvarta."
,,Ég var ekki ánægður með fyrri hálfleikinn hjá okkar strákum, en ég á ekki að láta svona við dómara leiksins og kenna þeim um. Ég bið algerlega afsökunar á því, en þetta er bara í hita leiksins eins og maður segir líka en maður má alveg spjalla við þá."
,,Ég mátti ekki segja orð við þá, þeir vilja ekki svara eða neitt. Þetta er bara leikur og mér finnst að þeir megi taka þátt í honum líka. Ef þeir eru óánægðir með það sem ég er að segja þá mega þeir spjalda mig, en það er ekki eins og þeir séu með kofa yfir sér og bara lokað," sagði Atla ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
























