Spennandi leikur Japana gegn Ítölum hefst klukkan 22:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á íþróttavef RÚV.
Japan tapaði 3-0 fyrir heimamönnum í Brasilíu á meðan Ítalir lögðu ríkjandi Ólympíumeistara Mexíkó 2-1.
Gríðarlega mikilvæg stig í húfi fyrir bæði lið sem þurfa á þremur stigum að halda. Koma bæði til að sigra.

Keisuke Honda og Shinji Kagawa eru í byrjunarliði Japana og spila fyrir aftan Ryoichi Maeda.
Ítalir breyta byrjunarliði sínu og leikkerfi frá sigrinum gegn Mexíkó í fyrstu umferð þar sem Alberto Aquilani og Emanuele Giaccherini koma inn í liðið.
Ítalía (4-3-2-1): Buffon - Maggio, Barzagli, Chiellini, De Sciglio - De Rossi, Pirlo, Montolivo - Giaccherini, Aquilani - Balotelli
Japan (4-2-3-1): Kawashima - Uchida, Yoshida, Konno, Nagatomo - Endo, Hasebe - Okazaki, Honda, Kagawa - Maeda