Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 15:30
Magnús Már Einarsson
Bendtner í viðræðum við Frankfurt
Nicklas Bendtner, framherji Arsenal, á í viðræðum við þýska félagið Eintracht Frankfurt.

Bendtner hefur verið á láni hjá Juventus og Sunderland undanfarin tvö tímabil og nú er ljóst að hann er á förum frá Arsenal.

Talið er að Bendtner megi fara fyrir þrjár milljónir punda og Frankfurt vonast til að krækja í kappann.

,,Við erum í alvöru viðræðum við Bendtner," sagði Heribert Buchhagen yfirmaður íþróttamála hjá Frankfurt.

Bendtner hefur einnig verið orðaður við Malaga og Hamburg að undanförnu.
Slapp
banner
banner