Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 17:30
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Staðráðnir í að sýna að við erum bestir
Leikmaður 6. umferðar: Davíð Birgisson (KV)
Davíð Birgisson.
Davíð Birgisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð í bikarleik gegn Víkingi R.
Davíð í bikarleik gegn Víkingi R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV trónir á toppi 2. deildar að loknum sex umferðum. Liðið átti ekki í vandræðum í toppslag gegn ÍR í síðustu viku og vann 5-2 sigur.

Davíð Birgisson, leikmaður KV, var á eldi í leiknum og lagði upp fjögur mörk. Hann er leikmaður 6. umferðar í 2. deild.

„Ég hef alltaf verið duglegur að leggja upp mörk sama hvar ég hef spilað. Ég hef alveg jafnmikla ánægju af því að leggja upp eins og að skora. Við ákváðum að breyta aðeins áherslum í þessum leik, þéttum okkur á miðjunni og ég fór út á kantinn," segir Davíð.

„Það gekk sérstaklega vel í fyrri hálfleik þar sem við náðum að spila vel og opna þá mikið. Það „tjúnaði" okkur upp að gera bara jafntefli gegn Njarðvík í umferðinni á undan þar sem við vorum bara lélegir og áttum í raun ekki meira skilið úr þeim leik. Það gerði að verkum að við komum enn grimmari til leiks."

„Ef við mætum tilbúnir í alla leiki teljum við okkur vera betri en öll önnur lið í deildinni. Mér finnst við vera besta liðið í deildinni, vera með besta mannskapinn. Við erum staðráðnir í að sýna fótboltaáhugamönnum að svo sé."

Hef gaman að þessu verkefni
Davíð er uppalinn hjá KR og hefur einnig leikið í Pepsi-deildinni með Selfossi. Er hann ekkert farinn að sakna þess að vera á stærra sviði?

„Ekki eins og staðan er í dag. Ég hef mjög gaman að því verkefni sem við erum í. Maður hefur fengið leiða og ekki fundið sig hjá hinum og þessum liðum en þegar maður er í svona skemmtilegu verkefni sem gengur vel og stemningin í hópnum er góð er maður lítið að spá í öðrum hlutum," segir Davíð.

Samkeppnin hjá KV er mikil en Davíð segir að menn sem minna hafa fengið að spila séu ekkert orðnir ósáttir.

„Þessu hefur verið skipt ágætlega niður. Það hafa verið einhver meiðsli og við höfum ekki enn verið með okkar allra sterkasta 18 manna hóp. Það hefur ekki komið að því að menn hafi farið í fýlu. Það er alveg ljóst að einhverjir þurfa að sætta sig við að vera á bekknum, það geta ekki allir spilað alltaf," segir Davíð Birgisson.

Sjá einnig:
Bestur í 5. umferð: Guðmundur Atli Steinþórsson (HK)
Bestur í 4. umferð: Marteinn Urbancic (ÍR)
Bestur í 3. umferð: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Bestur í 2. umferð: Einar Már Þórisson (KV)
Bestur í 1. umferð: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner