Heimild: BBC
Enski framherjinn Andy Carroll stóðst læknisskoðun hjá West Ham United í gær, en hann kemur til félagsins frá Liverpool á 15 milljónir punda.
Carroll, sem er 24 ára gamall, kom til Liverpool frá Newcastle United í janúar 2011 fyrir 35 milljónir punda, en var á láni hjá West Ham á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 7 mörk í 24 leikjum.
West Ham ákvað því að nýta sér hæfileika hans áfram, en Liverpool og West Ham komust að samkomulagi um kaupverðið í maí.
Leikmaðurinn fór þá í læknisskoðun hjá Lundúnarliðinu í gær og stóðst hana, en þá á aðeins eftir að ganga frá samningum við leikmanninn sjálfan áður en hægt verður að staðfesta kaupin.


