Massimo Moratti, forseti Internazionale á Ítalíu, segir að viðræður við Parma standi nú yfir með að skipta á Antonio Cassan og Ishak Belfodil.
Cassano, sem er 30 ára gamall gekk til liðs við Internazionale frá nágrönnum þeirra í AC Milan á síðasta ári, en tókst ekki frekar en öðrum leikmönnum liðsins að gera gott mót á tímabilinu sem var að líða.
Moratti, forseti Inter, sér því sig knúinn til þess að gera breytingar á hópnum, en hann ætlar sér að skipta Cassano og Matias Silvestre á Ishak Belfodil, leikmanni Parma, sem er talinn vera hinn næsti Karim Benzema.
Belfodil, sem er 21 árs gamall, kom til Parma frá Lyon á síðasta ári fyrir 2,5 milljónir evra, en hann er talinn einn efnilegasti leikmaður sem komið hefur frá Frakklandi. Hann er þó fæddur í Alsír en lék með yngri landsliðum Frakklands.
Hann hefur ákveðið að spila með Alsír hinsvegar, en á samt sem áður eftir að spila sinn fyrsta leik.



