David Luiz, leikmaður Chelsea og brasilíska landsliðsins, segir að hann vilji mæta spænska landsliðinu í Álfukeppninni sem fer fram í heimalandi hans.
Brasilía hefur byrjað mótið sterkt, en liðið vann Japan í fyrsta leik með þremur mörkum gegn engu.
Liðið mætir Mexíkó í dag í öðrum leik riðilsins, en David Luiz vill mæta Spánverjum í keppninni.
,,Ég held að við allir viljum mæta Spánverjum, þá sérstaklega ég. Spænska liðið er mjög öflugt í augnablikinu og þeir frábæran bolta. Liðið inniheldur marga frábæra einstaklinga og liðið spilar vel sem heild," sagði David Luiz.



