Leiknismenn eru úr leik í bikarnum eftir 3-0 tap fyrir KR á Leiknisvelli í kvöld. Egill Atlason, varnarmaður Leiknis, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Það var mjög hægt tempó í þessum leik. Ég gæti spilað sex svona leiki í röð, ég blæs varla úr nös eftir þetta. Hefði mark dottið fyrir okkur hefði þetta verið allt annar leikur," sagði Egill sem býst við að Freyr Alexandersson þjálfari skoði vel það sem fór úrskeiðis.
„Við klikkum í föstum leikatriðum sem er óvanalegt hjá okkur. Freysi verður bara með videofund og við förum yfir þetta saman."
Óskar Örn Hauksson var maður leiksins í kvöld og braut ísinn fyrir KR með stórglæsilegu marki.
„Skari hefur þetta í sér, sama hversu lélegur hann er..." sagði Egill áður en Emil Atlason, bróðir hans sem leikur með KR, stökk á hann og truflaði viðtalið. „Nei ég er að grínast. Hann er aldrei lélegur. Hann er með þennan frábæra vinstri fót. Ég held að ég hafi spilað þrisvar við Skara og hann hefur alltaf skorað svona glæsimark."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.























