Svekktur að spila 120 mínútur plús og fá ekkert fyrir það
Ejub var skiljanlega svekktur með tapið gegn Frömmurum í kvöld.
Það er vissulega súrt að tapa, sérstaklega eftir að spila framlengingu en svona er bara fótboltinn.
Það er vissulega súrt að tapa, sérstaklega eftir að spila framlengingu en svona er bara fótboltinn.
Ejub fannst ýmislegt jákvætt við leikinn.
Það var vissulega margt jákvætt, sérstaklega varnarlega. Við erum ekki að gefa eins og venjulega og við sköpum mörg færi og hálffæri. Kannski ef við hefðum fleiri stig og meira sjálfstraust hefðum við klárað leikinn í dag.
Honum fannst vera brot í aðdraganda marks Frammara.
Auðvitað fannst mér það. En það er auðvitað langbest að sjá þetta aftur og ég ætla ekki að setja út á dómarana, mér fannst þeir frábærir í kvöld. Allir þrír.
Í viðtalinu ræðir Ejub einnig sterka innkomu varamannanna og spáir í framhaldið hjá liðinu.
























