Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarúrslitaleikurinn færður
Úrslitaleikur enska FA bikarsins var lengi vel síðasti leikur tímabilsins á Englandi en því fyrirkomulagi var breytt fyrir nokkrum árum til mikillar óánægju.

Síðustu ár hefur úrslitaleikur bikarsins verið spilaður á svipuðum tímum og leikir í ensku Úrvalsdeildinni og til að mynda þá urðu Manchester United Englandsmeistarar á sama degi og Manchester City lék úrslitaleik FA bikarsins gegn Stoke.

,,Við vitum vel að knattspyrnuáhugamenn og fjölmiðlar hafa verið að kvarta undan því að enski bikarúrslitaleikur sé á sama tíma og lokaleikir deildartímabilsins," sagði Alex Horne, ritari enska knattspyrnusambandsins.

,,Við erum hæstánægðir með að bikarúrslitaleikurinn sé aftur kominn með sérdag, viku eftir lokaumferð deildarinnar."
Slapp
banner
banner