Tveir KSÍ dómarar sem dæma í 4. deild karla fengu að líta rauða spjaldið í sömu deild í gær. Annar þeirra er að dæma leik í deildinni í kvöld.
Framherjinn Andri Valur Ívarsson sem hefur áður leikið með Völsungi, Val, Fjölni og Fjarðabyggð leikur í dag með KFG í 4. deidlinni. Hann kom liðinu yfir gegn Álftanesi þegar liðin mættust í gær í 1-2 sigri KFG.
Undir lok leiksins fékk Andri Valur að líta tvær áminningar, á 84. og 95. mínútu leiksins og þar með rautt spjald og missir því af næsta leik sem leikmaður.
Hann fær samt að taka þátt í næsta leik sínum í deildinni því hann dæmir líka í deildinni og mætir í dómarabúningnum á gervigrasið við Kórinn í kvöld þegar Ísbjörninn tekur á móti Ými í 4. deildinni.
Hann er reyndar ekki eini dómarinn sem lenti í sömu stöðu í leiknum í gær. Magnús Valur Böðvarsson var liðsstjóri hjá liði Álftanes og fékk að líta rauða spjaldið á 95. mínútu leiksins einnig. Hann er líka dómari í deildinni.


