Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur hafnað nýju samningstilboði frá IFK Norrköping.
Í fyrradag skoraði Gunnar sitt sjöunda mark á tímabilinu í jafntefli Norrköping og Kalmar.
Samningaviðræður hans við félagið hafa hins vegar gengið erfiðlega og því er óvíst með framtíð hans eftir tímabilið.

,,Norrköping sagði nei við móttilboði okkar," sagði Ólafur Garðarsson umboðsmaður Gunnars í samtali við sænska fjölmiðla.
Jan Andersson, þjálfari Norrköping, segist í samtali við sænska fjölmiðla ennþá vonast til að Gunnar framlengi samning sinn við félagið.