Hjörtur Hjartarson skoraði síðara mark Víkings þegar liðið lagði Tindastól 2-1 í Borgunarbikarnum í kvöld. Hjörtur skoraði úr vítaspyrnu snemma leiks.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 1 Tindastóll
,,Ef það kemur víti og maður er inn á þá heimta ég að taka það. Þeir ætluðu að láta einhvern hafsent taka þetta en ég tók það ekki mál," sagði Hjörtur léttur í bragði.
Hjörtur fékk að líta gula spjaldið hjá Garðari Erni Hinrikssyni dómara leiksins.
,,Garðar var að missa vitið í fyrri hálfleik með þessi gulu spjöld, baróninn sjálfur. Hann dæmdi þennan leik ágætlega en var full glaður á þessi spjöld. Gula spjaldið sem hann gaf mér var aldrei spjald. Mér fannst Garðar ekki hafa neina tilfinningu fyrir leiknum þarna en hann er samt fínn gaur."
Víkingur verður í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslitin á föstudag og Hjörtur á óskamótherja þar.
,,Ég vil fá lið sem er fyrir neðan okkur í deild. Eru ekki Grótta og Magni að spila? Það væri fínt að fá annað hvort þeirra á heimavelli. Með fullri virðingu fyrir þeim þá eigum við meiri möguleika á móti þeim en KR í Frostaskjólinu. Ég vil bara fá lið sem við eigum mestan möguleika á að vinna."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























