Keflavík staðfesti á vef Víkurfrétta í morgun að Zoran Daníel Ljubicic sé hættur með liðið og Kristján Guðmundsson tekinn við starfinu.
Keflavík er í 9. sæti Pepsi-deildarinnar með fjögur stig eftir sjö umferðir. Félagið tilkynnti á vef Víkurfrétta að félagið hafi komist að samkomulagi við Zoran um að láta af störfum.
Kristján tók óvænt við liði Keflavíkur fyrir tímabilið 2005 þegar Guðjón Þórðarson lét af störfum skömmu fyrir mót en hann hafði verið aðstoðarmaður hans. Hann stýrði liðinu til ársins 2009 og á tíma sínum þar gerði hann liðið að bikarmeisturum 2006 og rétt missti af Íslandsmeistaratitlinum árið 2008.
Hann fór til Færeyja að þjálfa HB eftir að hann hætti með Keflavík þá og tók svo við Val frá 2011 og út síðasta tímabil þegar Magnús Gylfason tók við í vetur. Hann hefur áður þjálfað meistarafloka hjá ÍR og Þór á Akureyri.
Hann tekur nú við Keflavík að nýju og stýrir liðinu til loka tímabilsins.
Keflavík er þriðja liðið sem skiptir um þjálfara á tímabilinu. Ríkaharður Daðason tók við Fram af Þorvaldi Örlygssyni og Þórður Þórðarson er hættur með lið ÍA. Keflavík mætir ÍA í næstu umferð og þá er ljóst að bæði lið verða með nýjan þjálfara.




