Franskir fjölmiðlar greina frá því að peningaveldið AS Monaco, ætli sér að kaupa Stephan El Shaarawy og Kevin-Prince Boateng, leikmenn AC Milan á Ítalíu.
Monaco tryggði sér þátttökurétt í efstu deild í Frakklandi á tímabilinu sem var að klárast, en óhætt er að segja að eigendur félagsins ætli sér að fara langt með liðið, þar sem félagið hefur eytt fúlgu fjár í leikmenn í sumar.
Liðið hefur þegar keypt þá Radamel Falcao, Joao Moutinho, James Rodriguez, Ricardo Carvalho og Emmanuel Riviere, en liðið þarf fleiri leikmenn til að keppa við bestu lið Frakklands.
Fjölmiðlar í Frakklandi segja nú að Monaco sé reiðubúið til þess að greiða 60 milljónir evra til þess að fá Kevin-Prince Boateng og Stephan El Shaarawy frá AC Milan, en þeir hafa verið mikilvægustu leikmenn félagsins síðustu ár
Ljóst er að Milan gæti selt leikmennina, enda hefur varaforseti félagsins, Adriano Galliani, sagt að allir leikmenn liðsins séu til sölu fyrir rétt verð. Milan seldi þá Zlatan Ibrahimovic og Thiago Silva á síðasta ári til Paris Saint-Germain fyrir 65 milljónir evra.



