Sögulegu mótmælin sem eiga sér stað í Brasilíu á meðan á Álfukeppninni stendur hafa fengið mikinn meðbyr eftir viðtal við leikmenn brasilíska landsliðsins.
Álfukeppnin er eins konar upphitun fyrir Heimsmeistaramótið sem verður á Brasilíu á næsta ári en fólk er að mótmæla um alla Brasilíu til að vekja athygli á hversu hræðileg lífskjör eru í landinu.
Álfukeppnin er eins konar upphitun fyrir Heimsmeistaramótið sem verður á Brasilíu á næsta ári en fólk er að mótmæla um alla Brasilíu til að vekja athygli á hversu hræðileg lífskjör eru í landinu.
Verið er að mótmæla því að ríkisstjórn landsins sé að eyða of miklum fjárhæðum í Álfukeppnina og Heimsmeistaramótið þegar heilbrigðiskerfið, skólakerfið og almenningssamgöngur þarfnast mikilla endurbóta.
Landsliðsmenn Brasilíu hafa ekki viljað tala um þessi mál en sóknarmaðurinn Hulk segist helst vilja fara út á götur með landsmönnum og mótmæla, og aðrir landsliðsmenn Brasilíu eru sammála.
,,Eftir að hafa séð allt fólkið á götunum langar mig að fara og mótmæla með þeim," sagði Hulk.
,,Fólkið er að gera rétt. Í Brasilíu þarf margt að laga, við vitum það öll."
David Luiz talaði þá einnig við fréttamenn og hafði svipaða sögu að segja.
,,Fólk hefur rétt til þess að tjá sína skoðun og mótmæla þegar það er óánægt með það sem er að gerast í eigin landi.
Ég bý ekki í Brasilíu en ég elska land mitt. Brasilíubúar elska land sitt og þess vegna eru þessi mótmæli svona stór."




