Gunnar Stígur Reynisson skrifar frá Höfn í Hornafirði
,,Í fyrri hálfleik vorum við bara nokkuð þéttir og fengum álitleg upphlaup og færi sem við hefðum getað gert örlítið betur úr, sagði Óli Stefán Flóventsson þjálfari Sindra eftir 0-3 tap gegn Fylki heima í Borgunarbikarnum í kvöld.
,, Við vorum mjög þéttir varnarlega og opnuðum okkur lítið. Það sem þeir fengu var útfrá okkar mistökum. Þegar líða tók á og þreytan kom sást gæðamunurinn. En ég er í heildina mjög sáttur."
Sindra gekk vel gegn Pepsi-deildarliðinu í fyrri hálfleik þrátt fyrir að vera úr 2. deild en í síðari hálfleik duttu mörkin inn. Fyrsta markið var umdeilt.
,,Jájá, það var klárlega brotið á mínum manni í tvígang en kannski er þetta virðing, hann sleppir því og þeir fara í gegn og skora. Eftir þetta var erfitt og brekka en þeir reyndu allan tímann og síðustu 10-15 mínúturnar voru þeir farnir að spila fótbolta að mínu skapi og sluppum í gegn og hefðum getað skorað eitt mark. 3-1 hefði verði fallegri tala."


