Fausto Rossi, leikmaður ítalska U21 árs landsliðsins, var eðlilega svekktur eftir 4-2 tap liðsins í úrslitaleik Evrópumótsins í gær.
Ítalía tapaði fyrir Spánverjum með fjórum mörkum gegn tveimur í gær í úrslitaleik Evrópumótsins, en spænska liðið vann alla sína leiki og var eins og óstöðvandi vél á öllu mótinu.
Spánverjar komust yfir í leiknum áður en Ítalir jöfnuðu. Spænska liðið tók hinsvegar leikinn í sínar hendur og skoruðu þrjú mörk í röð áður en Fabio Borini minnkaði muninn. Því vel verðskuldaður sigur spænska liðsins.
,,Ég held að leikurinn hafi ekki breyst útaf vítaspyrnunni, það sem skipt sköpum var færið sem Alessandro Florenzi fékk og að við nýttum það ekki," sagði Rossi.
,,Við fengum mark á okkur strax eftir það færi. Við spiluðum fínan leik og berum höfuðið hátt," sagði hann að lokum.

