Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 16:10
Elvar Geir Magnússon
Þorvaldur Örlygsson tekinn við ÍA (Staðfest)
Stýrir liðinu þó ekki á morgun
Þorvaldur Örlygsson ásamt Dean Martin og Jóni Þór Haukssyni aðstoðarmönnum sínum eftir undirskriftina í dag.
Þorvaldur Örlygsson ásamt Dean Martin og Jóni Þór Haukssyni aðstoðarmönnum sínum eftir undirskriftina í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Þorvaldur Örlygsson er tekinn við þjálfun ÍA. Hann mun þó ekki stýra liðinu á morgun þegar liðið leikur við Breiðablik í Borgunarbikarnum. Dean Martin, sem verður aðstoðarmaður Þorvaldar, stýrir liðinu í þeim leik.

Fyrsti leikur Þorvaldar, sem nýlega hætti störfum hjá Fram, sem þjálfari ÍA verður á mánudagskvöld gegn Keflavík.

Af heimasíðu ÍA:
Knattspyrnufélag ÍA og Þorvaldur Örlygsson hafa undirritað samning þess efnis að Þorvaldur taki að sér þjálfun meistaraflokks karla. Samningurinn er ótímabundinn með venjulegum gagnkvæmum uppsagnarfresti.

Viðræður á milli aðila hófust seint í gærkvöld og hefur nú lokið með því að samkomulag hefur náðst. Strax í upphafi viðræðna var ljóst að samhljómur var á milli Knattspyrnufélags ÍA og Þorvaldar um framtíðarsýn félagsins.

Þorvaldur er einn af reynslumestu þjálfurum landsins og að baki farsælan feril sem leikmaður.

F.h. Knattspyrnufélags ÍA
Slapp
banner