Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 08:29
Daníel Freyr Jónsson
Titilvörn United hefst gegn Swansea - Mourinho mætir nýliðum
Leikskipulag ensku úrvalsdeildarinnar fyrir næstu leiktíð hefur verið gefið út. Strax í annarri umferð verður sannkallaður risaleikur þegar Englandsmeistarar Manchester United taka á móti Chelsea.

Fyrsti leikur United undir stjórn David Moyes verður gegn Swansea, á meðan fyrsti leikur Jose Mourinho sem stjóri Chelsea verður gegn nýliðum Hull.

Liverpool fær Stoke í heimsókn í 1. umferð, en sú viðureign hefur ekki þótt mikið fyrir augað undanfarin ár. Þá mætir Tottenham, með Gylfa Þór Sigurðsson innanborðs, Crystal Palace og Swansea í fyrstu tveimur umferðunum.

Í þriðju umferð fara fram tveir risaleikir. Lundnúnarliðin Arsenal og Tottenham eigast við, auk þess sem Liverpool tekur á móti erkifjendunum í Manchester United.

Hér að neðan má sjá fyrstu fjórar umferðirnar.

1. umferð - 17. ágúst

Arsenal - Aston Villa
Chelsea - Hull City
Crystal Palace - Tottenham Hotspur
Liverpool - Stoke City
Manchester City - Newcastle United
Norwich City -Everton
Sunderland - Fulham
Swansea City - Manchester United
West Bromwich Albion - Southampton
West Ham United - Cardiff City

2. umferð - 24. ágúst

Aston Villa - Liverpool
Cardiff City - Manchester City
Everton - West Bromwich Albion
Fulham - Arsenal
Hull City - Norwich City
Manchester United - Chelsea
Newcastle United - West Ham United
Southampton - Sunderland
Stoke City - Crystal Palace
Tottenham Hotspur - Swansea City

3. umferð - 31. ágúst
Arsenal - Tottenham Hotspur
Cardiff City - Everton
Chelsea - Aston Villa
Crystal Palace - Sunderland
Liverpool - Manchester United
Manchester City - Hull City
Newcastle United Fulham
Norwich City - Southampton
West Bromwich Albion - Swansea City
West Ham United - Stoke City

4. umferð - 14. september
Aston Villa - Newcastle United
Everton - Chelsea
Fulham - West Bromwich Albion
Hull City - Cardiff City
Manchester United - Crystal Palace
Southampton - West Ham United
Stoke City - Manchester City
Sunderland - Arsenal
Swansea City - Liverpool
Tottenham Hotspur - Norwich City

Smellið hér til að sjá niðurröðun leikja í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðina 2013-14.

Slapp
banner