Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 11:32
Magnús Már Einarsson
Tryggvi Guðmunds: Vona að þeir velji Viking Classic
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir heimsækir Sindra í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld. Tryggvi Guðmundsson, leikmaður Fylkis, bíður spenntur eftir að spila á Höfn í Hornafirði í annað skipti á ferlinum.

,,Ég hef spilað þarna einu sinni og á virkilega góðar minningar. Það var árið 1997 þegar ég spilaði minn fyrsta landsleik gegn Færeyjum. Ég kom inn á í hálfleik og skoraði sigurmarkið. Það var humarhátíð í gangi á svipuðum tíma og við vorum leystir út með gjöfum. Þetta var algjör veisla," sagði Tryggvi við Fótbolta.net í dag.

Fylkismönnum hefur gengið illa í Pepsi-deildinni í sumar en liðið lagði Völsung í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins.

,,Við erum búnir að vinna einn leik í sumar og það var í bikarnum. Vonandi fylgjum því áfram. Fyrst að deildin er ekki að ganga upp hjá okkur þá kemur ekkert annað til greina en að klára bikarinn," sagði Tryggvi en hann segir Fylkismenn ekki vanmeta Sindra.

,,Það gerum við ekki. Lið sem er í ströggli eins og við hefur ekki efni á að vanmeta einn né neinn."

Mikil umræða hefur verið í gangi eftir að greint var frá því að leikmenn Fylkis þurfi að borga sjálfir 10 þúsund krónur af flugfargjaldinu í leikinn í kvöld. Heyrst hefur að baukur muni ganga í stúkunni á leiknum í kvöld til styrktar Fylkis og þá hafa yfir 500 manns skráð sig á Facebook síðu sem er sögð vera til að styðja Fylkismenn í ferðalagi sínu.

,,Ég er með húmorinn í lagi og ég er búinn að fylgjast með þessari umræðu. Mér finnst þetta mjög fyndið hjá þeim. Ég sá að einhverijr voru að mæla með því að taka á móti mér með kippu af bjór. Ég vona að þeir velji rétt og hafi þetta Viking classic."

,,Að öllu gamni slepptu þá finnst mér umræðan vera búin að snúast svolítið upp í það að leikmenn hafi verið að kvarta yfir löngu og ströngu ferðalagi. Við kvörtuðum ekki. Ég er úr Vestmannaeyjum og þekki að ferðast í útileiki þannig að mér dettur ekki í hug að væla yfir því."

,,Það sem þetta snérist um er að okkur bauðst þrír valkostir eins og væntanlega öllum öðrum liðum sem fara út á land. Það var að taka rútu, einkabíla eða fara með flugi. Einhverijr ætla sér að taka einkabílana en meginþorrinn mun taka flugið. Ég vel flugið vegna þess að ég tel það henta mér betur í undirbúningi fyrir leikinn,"
sagði Tryggvi.
Slapp
banner
banner
banner