Heimild: Vísir.is
„Leiknir Ágústsson er búinn að eyðileggja leikinn. Þessi maður er mesta sorp í íslenskum bolta. KSÍ til skammar ár eftir ár,“ skrifaði Heimir Gunnlaugsson, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, á Twitter eftir 2-2 jafntefli við Leikni Breiðholti í 1. deildinni.
Heimir var verulega ósáttur við frammistöðu Leiknis Ágústssonar dómara í leiknum en eftir að fjölmiðlar fjölluðu um skrif hans baðst hann afsökunar.
Skrif Heimis á Twitter þóttu fara það yfir strikið að Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur vísað þeim til aga- og úrskurðarnefndar sem mun ákveða hvaða refsingu Heimir og knattspyrnudeild Víkings munu fá. Þetta staðfesti Þórir við Eirík Stefán Ásgeirsson á Vísi.is.
Víkingar hafa frest til að skila skýrslu um málið til Aga- og úrskurðarnefndar áður en úrskurðað verður í málinu.


