Pepsi-deildin er tvískiptari en flest það sem tvískipt er. Öll úrslit umferðarinnar voru eftir bókinni frægu. Fleiri lið en oftast eru í bullinu með sína spilamennsku nú þegar sjö umferðum er lokið.
Leikur umferðarinnar: KR 4 - 2 ÍA
Skagamenn voru yfir í hálfleik en eru brothættir eins og sýndi sig klárlega í þessum skemmtilega leik. Nóttina eftir leikinn lagðist Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, undir feld og ákvað að best væri að stíga frá borði.
Þjálfari umferðarinnar: Heimir Guðjónsson
Úrslitin voru eftir bókinni en Heimir fær þennan titil fyrir þá einföldu staðreynd að FH-ingar koma alltaf aftur. Margir í Hafnarfirði áttu erfitt með að kyngja tapinu gegn KR en liðið mætti til Ólafsvíkur og tók öruggan skyldusigur. Gátu spilað á hálfum hraða á lokakaflanum.
Innkoma umferðarinnar: Kjartan Henry Finnbogason
Skoraði með sinni fyrstu snertingu. KR-ingar verið hrikalega öflugir í upphafi móts og andstæðingarnir eiga ekki von á góðu þegar KHF10 er aftur mættur í vopnabúrið í Frostaskjóli
Ekki lið umferðarinnar:
Nýliðarnir halda áfram að tapa og bera uppi þetta lið ásamt Skagamönnum.
Árni Snær (ÍA)
Luba (Víkingur) - Vrenko (Þór) - Hlynur Atli (Þór) - Ingi Freyr (Þór)
Rafalskis (ÍA) - Björn Páls (Víkingur) - Farid (Víkingur)
Jóhann Helgi (Þór) - Viðar (Fylkir) - Björgólfur (Valur)
Ekki sjálfsmark umferðarinnar: Sverrir Garðarsson
Fasteignasalinn Guðmundur Ársæll Guðmundsson sá um að dæma leik Fylkis og Breiðabliks og ákvað á óskiljanlegan hátt að skrá markið sem Nichlas Rohde skoraði sem sjálfsmark Sverris Garðarssonar. Miðað við þessa línu má búast við fjölda sjálfsmarka í næstu leikjum sem fasteignasalinn flautar.
Endurkoma umferðarinnar: Bjarni Fel
Bjarni Fel mætti aftur í KR-útvarpið en hann hefur verið fjarri góðu gamni í upphafi móts. Við fögnum því að endurheimta Bjarna Fel!
Mark umferðarinnar: Hólmbert Aron Friðjónsson
Hólmbert er "Nýr Rikki Daða" og skoraði með þrumuskoti þegar hann braut ísinn fyrir Fram gegn Þór. Reyndar fær dómari leiksins mínus í kladdann fyrir að dæma ekki hendi í aðdragandanum.
Tæklari umferðarinnar: Haukur Páll Sigurðsson
Fyrirliði Vals átti tæklingu sem gerði Hermann Hreiðarsson, þjálfara ÍBV, hoppandi reiðan. Haukur fékk gula spjaldið og eftir leik sagðist Hermann kannski að þurfa að kenna honum að tækla. „Ég lærði af Hermanni, ég horfði á hann tækla upp sinn feril. Eigum við ekki að segja að þetta sé honum að kenna þá," sagði Haukur léttur.
Ummæli umferðarinnar: Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs
„Fyrst og fremst eiga menn að skella skuldinni á að þjálfarinn sé ekki nógu klár í varnarfræðum," sagði Palli Gísla um sjálfan sig.
Dómari umferðarinnar: Gunnar Jarl Jónsson
Lá undir gagnrýni í Pepsi-mörkunum í síðustu umferð en lét það ekkert á sig fá í þessari og flautaði leik ÍA og KR stórvel.




