Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. júní 2018 11:20
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Kólumbíu og Japan: James og Honda á bekknum
Mynd: Getty Images
Kólumbía mætir Japan í næstsíðasta leik fyrstu umferðar Heimsmeistaramótsins.

Radamel Falcao leiðir sóknarlínu Kólumbíu sem teflir fram spennandi byrjunarliði.

James Rodriguez byrjar ekki vegna álagsmeiðsla á vöðva en líklegt er að hann komi við sögu. Juan Fernando Quintero, sóknartengiliður River Plate, fyllir í skarðið.

Þá er ekkert pláss fyrir Yerry Mina, miðvörð Barcelona, í byrjunarliði Kólumbíu.

Keisuke Honda er ekki í byrjunarliði Japana frekar en Shinji Okazaki, sóknarmaður Leicester. Yuya Osako, samherji Arons Jóhannssonar hjá Werder Bremen, byrjar fremstur.

Makoto Hasebe, 34 ára fyrirliði Japana, er vitaskuld í byrjunarliðinu rétt eins og Shinji Kagawa, sem leikur fyrir Dortmund og hefur gert 30 mörk í 92 landsleikjum.

Kólumbía: Ospina, Murillo, Arias, Mojica, D. Sanchez, C. Sanchez, Lerma, Cuadrado, Quintero, Izquierdo, Falcao.

Japan: Kawashima, Shoji, Nagatomo, Sakai, Yoshida, Shibasaki, Haraguchi, Kagawa, Inui, Hasebe, Osako.




Athugasemdir
banner
banner
banner