Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   þri 19. júní 2018 20:39
Arnar Helgi Magnússon
Donni um sigurgönguna: Smá stopp á henni
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Halldór Jón eða Donni eins og hann er gjarnan kallaður var hundsvekktur eftir að hafa aðeins fengið eitt stig gegn skipulögðu og góðu varnarliði Selfyssinga í kvöld. Fyrir leikinn höfðu Þór/KA unnið alla sína leiki í deildinni en Selfyssingar náð að binda enda á þessa sigurgöngu.

Lestu um leikinn: Selfoss 0 -  0 Þór/KA

„Sigurgöngunni er ekki lokið, það er kannski bara smá stopp á henni. Við ætlum að vinna næsta leik."

„Við fengum stig í dag en ég er reyndar ógeðslega fúll með það, við ætluðum að ná í þrjá punkta og vorum miklu betra liðið úti á vellinum. Við sköpuðum okkur miklu meira en nóg af helvítis færum til að skora eitt mark en það tókst ekki."

„Við vorum ragar fyrir framan markið og ætluðum að senda á næsta sem var ekki einu sinni í betra færi. Við vorum að nýta horn og aukaspyrnur illa. Stundum er þetta bara svona dagur og þetta var bara off í dag."

Við tekur mjög erfitt leikjaprógram í deildinni en liðið hefur nær eingöngu spilað við lið í neðri hlutanum það sem af er.

„Mér líst bara vel á það eins og alla leiki. Við ætlum að vinna alla þá leiki sem að eftir eru, það hlýtur að vera markmið allra liða. Það er ekkert annað í stöðunni en að girða sig í brók."

Viðtalið við Donna má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner