þri 19. júní 2018 21:07
Ingólfur Páll Ingólfsson
Einkunnir Rússland og Egyptaland: Fjórir fá 8 hjá Rússum
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Rússland og Egyptaland áttust við í fyrst leik 2.umferðar í riðlakeppni Heimsmeistaramótsins.

Fyrri hálfleikur var nokkuð tíðindalítill en Rússar settu í fluggír í seinni hálfleik og skoruðu þrjú mörk. Liðið hefur byrjað gríðarlega vel og stendur vel að vígi fyrir lokaumferðina. Egyptar eru hinsvegar svo gott sem úr leik.

Dzyuba og Cheryshev skoruðu sitt hvort markið og fá báðir 8 í einkunn ásamt þeim Samedov og Zobnin.

Hjá Egyptum fá þrír 7 í einkunn, þar á meðal Salah sem skoraði eina mark liðsins í leiknum eftir vítaspyrnu.

Hér að neðan er einkunnagjöfin í heild sinni.

Rússland: Akinfeev (7), Fernandes (7), Kutepov (7), Ignashevich (6), Zhirkov (7), Cheryshev (8), Gazinsky (6), Zobnin (8), Golovin (7), Samedov (8), Dzyuba (8) Varamenn: Kuzayev (6), Smolov (6)

Egyptaland: El Shenawy (5), Gabr (6), Hegazi (6), Fathi (5), Abdel-Shafy (6), Hamed (7), Salah (7), Elneny (6), Said (6), Hassan (7), Mohsen (7) Varamenn: Warda (6), Ramadan (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner