Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. júní 2018 15:54
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar fór haltrandi af æfingu
Mynd: Getty Images
Neymar er tæpur fyrir næsta leik Brasilíu á Heimsmeistaramótinu eftir að hann fór haltrandi af æfingu liðsins í dag.

Neymar meiddist á ökkla í vor og þurfti að fara í aðgerð. Talið er að hann hafi meiðst aftur á sama stað.

Neymar lék allan leikinn í 1-1 jafntefli gegn Sviss í fyrstu umferð. Næsti leikur er skyldusigur gegn Kosta Ríka.

Liðslæknarnir eru að skoða stórstjörnuna. Neymar virkaði sárþjáður og mögulegt að hann missi af næsta leik.
Athugasemdir
banner
banner