Andri Rúnar Bjarnason byrjaði inn á og spilaði allan leikinn í framlínu Helsingborg í dag.
Helsingborg mætti Varbergs í miklum markaleik í kvöld. Varbergs skoraði eftir einungis þrjár mínútur og komst tveimur mörkum yfir undir lok fyrri hálfleiks.
Helsingborg kom ákveðið til leiks í síðari hálfleik og minnkaði muninn en fékk í kjölfarið á sig þriðja markið og útlitið svart fyrir Andra Rúnar og félaga.
Helsingborg var hinsvegar ekki af baki dottið og eftir að hafa minnkað muninn kom jöfnunarmarkið á 81. mínútu. Fleiri var ekki skorað og jafntefli niðurstaðan. Andra Rúnari tókst ekki að koma knettinum í netið að þessu sinni en hann er kominn með 4 mörk í 13 leikjum á þessu tímabili.
Andri og félagar í Helsingborg eru eftir leikinn í 4.sæti deildarinnar með 25 stig, 5 stigum frá toppsætinu.
Athugasemdir