Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. júní 2018 11:56
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Ingibjörg jafnaði í uppbótartíma - Sjáðu markið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Linköping 1 - 1 Djurgården
1-0 Natasha Dowie ('60)
1-1 Ingibjörg Sigurðardóttir ('91)

Guðbjörg Gunnarsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir léku allan leikinn er Djurgården náði jafntefli á útivelli gegn Linköping.

Ingibjörg gerði jöfnunarmark Djurgården með frábærum skalla í uppbótartíma. Markið er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Bæði lið eru um miðja deild, með ellefu stig eftir átta umferðir. Djurgården eiga næst leik við Gautaborg, sem er tveimur stigum fyrir ofan.




Athugasemdir
banner
banner