Enski markvörðurinn Fraser Forster hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Southampton.
BBC greinir frá þessu í dag.
BBC greinir frá þessu í dag.
Forster kom frá Celtic árið 2014 og hefur leikið 103 leiki með félaginu síðan þá.
Þessi 29 ára gamli leikmaður skrifaði undir fimm ára samning í maí 2016 en ákvað þó að lengja hann strax til næstu fimm ára.
Á seinasta tímabili spilaði markvörðurinn hverja einustu mínútu með Southampton í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir