mið 19. júlí 2017 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola: Aguero er okkar leikmaður
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Sergio Aguero mun ekki fara frá Manchester City í sumar, en þetta staðfestir stjóri liðsins, Pep Guardiola.

Aguero, sem hefur skorað 122 mörk í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið orðaður við Englandsmeistara Chelsea.

Antonio Conte, stjóri Chelsea, vildi kaupa Aguero til þess að leysa Diego Costa af hólmi hjá meisturunum. Costa er ekki í plönunum hjá Conte fyrir næsta tímabil þrátt fyrir að hafa gott síðasta tímabil.

Manchester City er þessa stundina í æfingaferð í Bandaríkjunum og þar var Guardiola spurður út í Aguero.

„Hann er okkar leikmaður. Hann verður hér áfram," sagði Guardiola við blaðamenn í Bandaríkjunum.

Talið er að Chelsea sé að ganga frá kaupum á Alvaro Morata, sóknarmanni Real Madrid, eftir að hafa fengið að vita að Aguero væri ekki til sölu í sumar.

Ekki missa af Super match á Laugardalsvelli
Manchester City og West Ham mætast á Laugardalsvelli klukkan 14:00 föstudaginn 4. ágúst. Kræktu þér í miða á midi.is.
Athugasemdir
banner
banner
banner