Argentínumaðurinn Carlos Tevez segist vera ánægður í Kína.
Hinn 33 ára gamli Tevez fór til Shanghai Shenhua í janúar og hefur hingað til skorað fjögur mörk og lagt upp tvo í tíu leikjum.
Það hefur verið talað um mögulega endurkomu Tevez til Boca Juniors, en hann segir það ekki í myndinni eins og er.

„Ég hugsa ekki um að snúa aftur í dag, ég er undur í Sjanghæ," sagði Tevez við útvarpsstöðina FM Late 93.1 í Argentínu.
„Ég verð í eitt ár viðbót í Kína, ég er með samning og síðan sé ég til hvað ég geri," sagði Tevez.
„Það er ekkert ákveðið hjá mér. Ég vil njóta tímans sem ég á eftir í Kína og síðan mun ég setjast niður með fjölskyldu minni."
Athugasemdir