Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 19. júlí 2017 20:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vestri segir Danimir Milkanovic upp störfum (Staðfest)
Danimir Milkanovic.
Danimir Milkanovic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnudeild Vestra og Danimir Milkanovic hafa komist að þeirri niðurstöðu að Danimir leggi niður störf sem aðalþjálfari meistaraflokks Vestra í knattspyrnu.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá Vestra í kvöld.

„Ástæða starfsloka er árangur liðsins í sumar sem báðir aðilar eru sammála um að sé alls ekki sá sem var stefnt á í byrjun sumars," segir í fréttatilkynningu frá Vestra.

„Knattspyrnudeild Vestra þakkar Danimir fyrir sín störf, en Danimir hefur frá fyrsta degi lagt mikla vinnu í starf sitt. Óskum við honum velfarnaðar í komandi verkefnum."

Daniel Badu, sem hefur þjálfað liðið ásamt Danimir, mun halda áfram. Honum til halds og traust verða svo þeir Jón Hálfdán Pétursson og Pétur Georg Markan.

Vestri er í augnablikinu í sjöunda sæti 2. deildar karla með 16 stig, en það er eins og áður segir ekki ásættanlegur árangur.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner