Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 19. ágúst 2013 15:54
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Eyjafréttir 
David James vann við löndun í Vestmannaeyjum
David James að störfum.
David James að störfum.
Mynd: Eyjafréttir
David James tók þátt í að landa makríl upp úr uppsjávarskipinu Huginn VE í Vestmannaeyjum en þetta kemur fram í Eyjafréttum.

Leikmenn meistaraflokks ÍBV tóku verkefnið að sér sem fjáröflun og tóku David James, Hermann Hreiðarsson og aðrir vel á því.

„Menn höfðu reyndar gaman af því að þegar þeir Hermann Hreiðarsson og David James voru upp á sitt besta, þá voru þeir metnir á talsvert meira en söluandvirði aflans sem landað var," segir í frétt Eyjafrétta.

Það hefur verið nóg að gera hjá James að undanförnu. Á laugardag var hann sérfræðingur hjá BT Sports á leik Liverpool og Stoke, flaug svo til Íslands og lék með ÍBV gegn Víkingi Ólafsvík í gær. Í morgun var hann svo mættur í löndun með liðsfélögunum.
Slapp
banner
banner