þri 19. ágúst 2014 21:14
Brynjar Ingi Erluson
1. deild: Víkingur lagði HK - Fimm rauð í síðustu leikjum dagsins
Hilmar Rafn Emilsson skoraði tvö
Hilmar Rafn Emilsson skoraði tvö
Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
Þremur síðustu leikjum kvöldsins í fyrstu deild karla var að ljúka en Víkingur sigraði HK í mikilvægum leik og þá voru fimm rauð spjöld gefin í síðustu leikjum kvöldsins.

Haukar lögðu KV með þremur mörkum gegn tveimur. Ingólfur Sigurðsson kom KV yfir áður en Hilmar Rafn Emilsson jafnaði metin. Hilmar Rafn kom Haukum aftur yfir áður en Brynjar Benediktsson bætti við þriðja.

Gunnlaugur Fannar Guðmundsson fékk að líta rauða spjaldið stuttu seinna og Davíð Steinn SIgurðarson minnkaði muninn fyrir KV. Það var svo undir lokin er tveir úr KV fengu að líta rauða spjaldið.

Ingólfur fékk að líta rautt fyrir að slá leikmann Hauka og Gunnar Kristjánsson fékk að líta rautt fyrir kjaftbrúk. Lokatölur 3-2 Haukum í vil engu að síður.

Þróttur lagði Grindavík með tveimur mörkum gegn einu. Juraj Grizelj kom Grindavík yfir áður en Matt Eliason jafnaði metin. Þróttarar náði sigurmarkinu undir lokin og þá fékk Karl Brynjar Björnsson að líta rauða spjaldið. Lokatölur 2-1 fyrir Þrótturum.

Víkingur Ólafsvík lagði HK 1-0. Alejandro Lopez skoraði sigurmark heimamanna sem blanda sér nú í baráttuna um sæti í Pepsi-deildinni en Viktor Unnar Illugason fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks.

Úrslit og markaskorarar:

Haukar 3 - 2 KV
0-1 Ingólfur Sigurðsson ('4 )
1-1 Hilmar Rafn Emilsson ('24 )
2-1 Hilmar Rafn Emilsson ('48 )
3-1 Brynjar Benediktsson ('67 )
3-2 Davíð Steinn SIgurðarson ('82 )
Rautt spjald: Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('75, Haukar ), Ingólfur Sigurðsson ('90, KV ), Gunnar Kristjánsson ('90, KV )

Þróttur R. 2 - 1 Grindavík
0-1 Juraj Grizelj ('20 )
1-1 Matt Eliason ('63 )
2-1 Markaskorara vantar ('85 )
Rautt spjald: Karl Brynjar Björnsson ('86, Þróttur R. )

Víkingur Ó. 1 - 0 HK
1-0 Alejandro Lopez ('90 )
Rautt spjald: Viktor Unnar Illugason ('90, HK )
Athugasemdir
banner
banner
banner