Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 19. ágúst 2014 21:58
Arnar Daði Arnarsson
Halldór Árna: Haukaliðið var að slást
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Staða KV í 1. deildinni batnaði ekki eftir umferð kvöldsins. 2-3 tap gegn Haukum staðreynd og er KV ennþá í fallsæti deildarinnar eftir 17 umferðir með 17 stig og fjórum stigum frá öruggu sæti.

Halldór Árnason þjálfari KV sagði að sitt lið hafi verið betri aðilinn í leiknum í kvöld en það hafi ekki skilað þeim stigum sem liðið var að sækjast eftir.

,,Staðan hefur versnað eftir síðustu fjórar umferðir, það hefur farið illa í þessum leikjum og staðan er klárlega ekki góð eins og staðan lítur út núna. Við vorum betri aðilinn í dag, við spiluðum fótbolta en þeir voru að slást og það skilaði þeim þremur stigum," sagði Halldór.

,,Við reyndum að spila boltanum í gegnum miðjuna og halda boltanum en þegar við misstum boltann þurftum við að slást."

Á sjöttu mínútu uppbótartímans fengu tveir leikmenn KV að líta rauða spjaldið, fyrst Ingólfur Sigurðsson eftir baráttu við Andra Stein Birgisson sem féll og Gunnar Kristjánsson við sama tækifæri fyrir að láta einhver vel valin orð falla við Garðar Örn dómara leiksins.

,,Þeir héldu áfram að slást eins og þeir gerðu allan leikinn sem endar með því að þeirra leikmaður fer niður eftir klafs. Ég veit ekki hvað gerðist. Ingólfur Sigurðsson er ekki að fara slá einhvern það fast að hann fari niður. Ég veit síðan ekkert hvað Gunni (Gunnar Kristjánsson) sagði. Honum finnst ekki leiðinlegt að henda í nokkur rauð. Gunnar er að fara út og spilar ekki fleiri leiki en það er slæmt að missa Ingólf í bann, við þurfum á okkar öllum mönnum að halda."

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner