Paul Lambert, stjóri Aston Villa, er ósáttur með ummæli Ronald Koeman stjóra Southampton.
Koeman lýsti því yfir í síðustu viku að Ron Vlaar varnarmaður Aston Villa yrði fullkomin viðbót við hóp sinn. Lambert er ekki skemmt yfir þessum ummælum.
,,Það er vanvirðing þegar þú talar svona um leikmenn annarra liða. Ég tel að það sé rangt," sagði Lambert.

Vlaar lék mjög vel með Hollendingum á HM í sumar og frammistaða hans þar vakti athygli. Lambert reiknar þó ekki með að leikmaðurinn verði seldur.
,,Ron var frábær á laugardag og ég held að hann sé ekki að hugsa um að fara," sagði Lambert.
Athugasemdir