Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 19. ágúst 2014 16:30
Arnar Daði Arnarsson
Ólafur Finsen ætlar í klippingu fyrir leikinn gegn Inter
Ólafur Karl lagar á sér hárið fyrir viðtalið.
Ólafur Karl lagar á sér hárið fyrir viðtalið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er mjög spenntur, þetta verður eitthvað," sagði Ólafur Karl Finsen leikmaður Stjörnunnar varðandi stórleikinn gegn Inter annað kvöld í forkeppni Evrópudeildarinnar á Laugardalsvelli.

Ólafur byrjaði á því í viðtalinu að tilkynna það að hann væri á leiðinni í klippingu.

,,Maður dreymdi um að spila svona leiki þegar maður var yngri, en kannski ekki með Stjörnunni. Það er hinsvegar bara ennþá betra að maður spili svona stóran leik með Stjörnunni. Þetta verður þvílík upplifun og ótrúlegt að spila með uppeldisfélaginu á móti svona stóru félagi," sagði Ólafur Karl sem var ekki alveg að átta sig á því að vera æfa á Laugardalsvelli fyrir heimaleik í Evrópudeildinni.

,,Þetta er smá eins og útileikur. Þetta er svo nýtt allt saman, maður veit ekki hvað er í gangi. Þetta er allt frekar skrýtið ég myndi allavegana borga mig inn á þennan leik ef eitthvað annað íslenskt lið væri að spila gegn Inter,"

,,Ég er að pæla í sleppa því. Ég nenni því ekki. Bakvörðurinn sem ég mæti er líklega ágætur, ég nenni ekki að stressa mig á því. Ef hann er í Inter þá er hann líklega fínn. Ég er aðdáandi á Dodo, hann er nettur. Ég á eftir að sóla Vidic allavega einu sinni, hann fær martraðir," sagði kokhraustur Finsen.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner