Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 19. ágúst 2017 13:05
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Besti varnarmaður Pepsi-deildarinnar er...
Bjarni Ólafur Eiríksson (Valur)
Bjarni Ólafur er besti varnarmaðurinn.
Bjarni Ólafur er besti varnarmaðurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Orri Sigurður Ómarsson.
Orri Sigurður Ómarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Eiður Aron hefur komið sterkur inn hjá Val.
Eiður Aron hefur komið sterkur inn hjá Val.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net stóð fyrir könnun þar sem skoðað var hverjir væru bestir í Pepsi-deildinni að mati fólksins í stúkunni. Valið var eftir stöðum og gat hver sem er tekið þátt en þátttakan var gríðarlega góð.

Á X977 í dag var opinberað hverjir þrír efstu í hverjum flokki eru og hér að neðan má sjá þrjá bestu varnarmennina.

Sá sem valinn var besti varnarmaðurinn vann með nokkrum yfirburðum.

Þátttakendum gafst kostur á að koma með rökstuðning fyrir vali sínu og birtum við valin ummæli með.



1. Bjarni Ólafur Eiríksson (Valur)

„Herra áreiðanlegur. Í liðinu sem fær fæst mörk á sig og er stöðugt ógnandi í bakverðinum."

„Hann er "allur pakkinn", hraðinn hefur minnkað en hann getur allt annað. Frábær leikmaður."

„Sterkur sóknarlega með frábærar fyrirgjafir. Ofan á það flottur karakter. Spilar alltaf á pari eða undir pari. Gæði."



2. Orri Sigurður Ómarsson (Valur)

„Bindur saman vörn toppliðsins. Gríðarlega þroskaður varnarmaður þrátt fyrir að vera ekki gamall."

„Ef það eru ekki erlendir útsendarar í stúkunni á hverjum Valsleik að fylgjast með honum þá er eitthvað að klikka í njósnakerfinu."

„Varð lykilmaður Vals um leið og hann skrifaði undir og hefur ekki litið til baka."



3. Eiður Aron Sigurbjörnsson (Valur)

„Les leikinn frábærlega."

„Hefur sementað vörn Valsmanna. Besta vörnin í deildinni varð enn betri eftir að hann kom.."

„Valsmenn taka þetta á þéttum varnarleik og Eiður hefur komið með mikil gæði inn í liðið."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner