Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 19. ágúst 2017 13:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Billy Sharp tryggði sigur Sheffield United
Mynd: Getty Images
Sheffield Utd 1 - 0 Barnsley
1-0 Billy Sharp ('17 )
Rautt spjald: Angus McDonald, Barnsley ('42), Leon Clarke, Sheffield United ('42)

Það var hádegisleikur í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands, í dag. Sheffield United, sem er nýliði í deildinni, fékk Barnsley í heimsókn og úr varð mikill hörkuleikur.

Fyrsta mark leiksins kom eftir 17 mínútur, en það gerði sóknarmaðurinn Billy Sharp fyrir heimamenn.

Það reyndist eina mark leiksins og sigur Sheffield United staðreynd.

Þetta var annar sigur Sheffield United og þeir eru núna með sex stig eftir fjóra leiki. Barnsley er með þrjú stig eftir fjóra leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner