Fylgst með gangi mála á úrslitaþjónustu á forsíðu
Enska úrvalsdeildin heldur áfram á þessu geggjaða laugardegi. Það er alltaf skemmtilegur tími kl. 14:00 á laugardögum, þá er nóg um að vera. Núna eru fimm leikir að hefjast!
Sjónvarpsleikurinn er a milli Liverpool og Crystal Palace. Þar eru óvænt tíðindi í byrjunarliðsfréttunum.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gerir nokkrar breytingar. Stærstu tíðindin eru þau að Mohamed Salah er kominn á bekkinn.
Klopp róterar líka mikið í vörn sinni. Aðeins Joel Matip heldur sæti sínu. Ragnar Klavan, Joe Gomez og Andrew Robertson koma inn. Þá er James Milner líka í byrjunarliðinu. Hann er líklega á miðjunni.
Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley sem mætir West Brom. Jói Berg byrjaði fyrsta leik Burnley og hann heldur sæti sínu.
Það eru eins og áður segir fimm leikir að hefjast. Auk þeirra leikja sem nefndir hafa verið hér, þá mætast Bournemouth og Watford, Leicester fær Brighton í heimsókn og West Ham sækir Southampton heim. Hægt er að sjá öll byrjunarliðin hér að neðan.

Bournemouth - Watford
Byrjunarlið Bournemouth: Begovic, Cook, Ake, Surman, Arter, Afobe, Daniels, Smith, King, Fraser, Ibe.
Byrjunarlið Watford: Gomes, Britos, Prodl, Amrabat, Cleverley, Richarlison, Chalobah, Doucoure, Gray, Femenia, Holebas
Burnley - West Brom
Byrjunarlið Burnley: Heaton, Lowton, Tarkoski, Mee, Ward, Jóhann Berg, Hendrick, Cork, Defour, Brady, Vokes.
Byrjunarlið West Brom: Foster, Nyom, Hegazi, Dawson, Brunt, Phillips, Field, Livermore, Barry, McClean, Rodriguez.
Leicester - Brighton
Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Simpson, Morgan, Maguire, Fuchs, Mahrez, Ndidi, James, Albrighton, Okazaki, Vardy.
Byrjunarlið Brighton: Ryan, Bruno, Dunk, Duffy, Suttner, Murphy, Propper, Stephens, March, Gross, Murray.
Liverpool - Crystal Palace
Byrjunarlið Liverpool: Mignolet, Milner, Klavan, Gomez, Matip, Robertson, Henderson, Wijnaldum, Mane, Firmino, Sturridge.
Byrjunarlið Crystal Palace: Hennessey, Fosu-Mensah, Tomkins, Dann, Ward, Van Aanholt, Milivojevic, Puncheon, Loftus-Cheek, Townsend, Benteke.
Southampton - West Ham
Byrjunarlið Southampton: Forster, Soares, Bertrand, Yoshida, Stephens, Davis, Tadic, Romeu, Lemina, Gabbiadini, Redmond.
Byrjunarlið West Ham: Hart, Reid, Creswell, Fonte, Zabaleta, Rice, Arnautovic, Noble, Antonio, Ayew, Chicharito.
Leikir dagsins:
11:30 Swansea - Manchester United (Stöð 2 Sport)
14:00 Bournemouth - Watford
14:00 Burnley - West Brom
14:00 Leicester - Brighton
14:00 Liverpool - Crystal Palace (Stöð 2 Sport)
14:00 Southampton - West Ham
16:30 Stoke - Arsenal (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir