Stoke City 1 - 0 Arsenal
1-0 Jese ('47 )
1-0 Jese ('47 )
Lokaleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni var viðureign Stoke City og Arsenal.
Fyrri hálfleikur var markalaus en það breyttist allt í upphafi seinni hálfleiks.
Jese sem kom á láni til Stoke á dögunum frá PSG reyndist hetja þeirra í dag en hann skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks.
Það var Saido Berahino fyrrum leikmaður West Brom sem lagði upp markið fyrir Jese.
Fyrstu þrjú stig Stoke City í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið staðreynd, en þeir töpuðu fyrir Everton í fyrstu umferðinni.
Athugasemdir