Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. ágúst 2017 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola: Jonny Evans er leikmaður West Brom
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola hefur ekki sérstaklega miklar áhyggjur af leikmannamálum Manchester City.

Jonny Evans, varnarmaður West Brom, hefur verið orðaður við City, en hingað til hefur West Brom hafnað tveimur tilboðum. Síðasta tilboð Man City í Evans hljóðaði upp á 18 milljónir punda.

West Brom er víst tilbúið að selja Evans fyrir rétta upphæð, en Guardiola er rólegur. Hann vildi ekki mikið tjá sig þegar blaðamenn spurðu hann út í varnarmanninn í gær.

„Jonny Evans er leikmaður West Brom," sagði Guardiola á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Everton á mánudag.

„Við höldum áfram að vinna með þeim leikmönnum sem eru hérna núna, ef einhver kemur þá verðum við líka ánægðir. Ég veit hversu mikla vinnu þetta félag leggur á sig."
Athugasemdir
banner
banner
banner