Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. ágúst 2017 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mane um El Hadji Diouf: Elskaði að horfa á hann
El Hadji Diouf.
El Hadji Diouf.
Mynd: Getty Images
El Hadji Diouf er skrautleg týpa. Hann er þjóðhetja í heimalandi sínu, Senegal, en á Englandi er hann ekki alveg eins vinsæll.

Diouf spilaði með Liverpool í nokkur ár, en hann er ekki sérstaklega vinsæll hjá stuðningsmönnum liðsins. Upp á síðkastið hefur Diouf verið duglegur að láta fyrrum stjörnur liðsins heyra það.

Landi Diouf, hann Sadio Mane er vinsælli hjá stuðningsmönnum Liverpool heldur en Diouf. Mane kom til Liverpool fyrir síðasta tímabil og var fljótur að vinna sig inn í hug og hjörtu stuðningsmanna.

Mane segir í viðtali við Daily Mail að Diouf hafi verið fyrsti leikmaðurinn sem hann hafi elskað að sjá spila fótbolta.

„Hann var fyrsti leikmaðurinn sem ég elskaði að horfa á. Ég man eftir því að hafa horft á leikinn þegar við (Senegal) unnum," segir Mane í viðtalinu sem hann gaf Daily Mail.

„El Hadji er hetja heima fyrir, ég hitti hann oft þegar ég fer heim. Hann er kannski ekki eins mikil hetja hérna," sagði Mane léttur.
Athugasemdir
banner
banner
banner