Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 19. ágúst 2017 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mark Hughes ánægður með fyrsta leik Jese
Mynd: Getty Images
Mark Hughes var skiljanlega gríðarlega sáttur með fyrstu þrjú stig Stoke í ensku úrvalsdeildinni á þessum tímabili.

Stoke sigraði Arsenal, 1-0, þar sem nýji maðurinn hjá Stoke Jese Rodríguez skoraði eina mark leiksins. Hann kom á láni til Stoke frá PSG í vikunni.

„Hann kláraði þetta frábærlega. Allir sáu í dag hvað hann kemur með til Stoke og í úrvalsdeildina," sagði Hughes.

„Hann er klókur leikmaður sem getur breytt leikjum upp á sitt einsdæmi og við erum ánægðir með að hann skuli vera hér."

Næsti leikur Stoke City er gegn Rochdale í enska deildarbikaranum á miðvikudaginn.
Athugasemdir
banner