Tottenham er nálægt því að fá markmann frá Southampton en það er Sky Sports sem greinir frá.
Argentínumaðurinn Paulo Gazzaniga er markvörðurinn sem um ræðir en hann hefur verið samningsbundinn Southampton frá árinu 2012.
Hann lék á láni á Spáni á síðasta tímabili með Rayo Vallecano en hann yrði að öllum líkindum þriðji markvörður Tottenham.
Hugo Loris er eins og flestir vita aðalmarkvörður hjá Tottenham og Michel Vorm er til vara.
Tottenham er að fá Davinson Sanchez frá Ajax svo Gazzaniga verður líklega annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Tottenham í sumar.
Athugasemdir