Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. september 2014 19:53
Elvar Geir Magnússon
Noregur: Eiður Aron með mark í jafnteflisleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Aron Sigurbjörnsson skoraði mark Sandnes Ulf sem komst yfir gegn Brann í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Brann jafnaði 1-1 sem urðu lokatölur.

Eiður gekk í raðir Sandnes frá ÍBV í ágúst en hann kom liðinu yfir á 52. mínútu en jöfnunarmarkið kom tíu mínútum síðar.

Hannes Þór Halldórsson, Hannes Þ. Sigurðsson og Eiður spiluðu allan leikinn fyrir Sandnes sem er í neðsta sæti með 15 stig þegar sex umferðir eru eftir. Allt stefnir í að liðið falli.

Birkir Már Sævarsson kom inn sem varamaður í lokin í leiknum (86. mínútu) en Brann er í fjórða neðsta sæti með 23 stig og í fallhættu.
Athugasemdir
banner
banner