Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. september 2014 11:30
Elvar Geir Magnússon
Þjálfari Roma í ástarsambandi með fréttakonu félagsins
Rudi Garcia, þjálfari Roma.
Rudi Garcia, þjálfari Roma.
Mynd: Getty Images
Eftir frábæra byrjun á tímabilinu eru forráðamenn Roma líklega tilbúnir að horfa framhjá smávegis hagsmunaárekstrum.

Rudi Garcia, þjálfari liðsins, hefur skilað sigrum í fyrstu tveimur leikjum ítölsku A-deildarinnar og á þriðjudag vann Roma 5-1 sigur gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni.

Í skýjunum eftir leikinn ákvað hinn fimmtugi Garcia að opinbera ástarsamband sitt við sjónvarpskonu Roma TV en hún heitir Francesca Brienza og er 28 ára.

Þau hafa sést á síðum slúðurblaða en Garcia nennti ekki feluleik lengur.

„Ahh ég gleymdi einu.... þetta er einkalíf mitt. Francesca er hluti af því og ekki bara síðan í gær," skrifaði Garcia á Twitter og birti mynd af þeim saman í skoðunarferð í Colosseum.

Garcia á þrjú börn úr fyrra sambandi.



Athugasemdir
banner
banner