Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. september 2017 20:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Deildabikarinn: Tottenham og Swansea áfram
Dele Alli skoraði sigurmark Tottenham.
Dele Alli skoraði sigurmark Tottenham.
Mynd: Getty Images
Það voru tveir leikir sem hófust seinna en hinir leikirnir í enska deildabikarnum í kvöld.

Tottenham fékk Barnsley í heimsókn á Wembley. Tottenham virðist geta unnið á Wembley í öðrum keppnum í ensku úrvalsdeildinni, en í kvöld lögðu þeir Barnsley að velli.

Það tók tíma fyrir Tottenham að brjóta ísinn, en Dele Alli tókst að gera það þegar 65 mínútur voru búnar af leiknum.

Markið dugði Tottenham til sigurs, en í hinum leiknum vann Swansea 2-0 sigur á Reading. Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varmaður fyrir Reading þegar rúmur stundafjórðungur var eftir af leiknum, en hann náði ekki að setja mark sitt á leikinn.

Reading 0 - 2 Swansea
0-1 Alfie Mawson ('52 )
0-2 Jordan Ayew ('83 )

Tottenham 1 - 0 Barnsley
1-0 Dele Alli ('65 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner